myspace hit counter
www.aba.is



















Um síðuna

Um síðuna.

   Heimasíðu þessari er hrundið úr vör með það að leiðarljósi að safna saman öllu því, sem vitað er um bátasmíðar við Eyjafjörð. Vefurinn hefur það fram yfir bókina að hann er gagnvirkur á þann hátt að lesandinn getur lagt sitt af mörkum til að koma á framfæri þekkingu sinni á þeim málum, sem vefurinn fjallar um. 
   Lesendur eru því sérstaklega beðnir um að skoða vel meðfylgjandi lista yfir skip og báta, sem byggðir hafa verið á Eyjafjarðarsvæðinu þannig að skrásetjari geti fyllt í þær eyður sem þar er að finna. Hægur vandi er að koma upplýsingum til skrásetjara því að á hverri síðu vefsins er afmarkaður kassi fyrir skilaboð. Öllum ábendingum verður jafnóðum komið á vefinn og er það von skrásetjara að hann þenjist út í líkingu við þann er sat fjósbitann forðum. 
   Það framtak að setja vefinn í loftið er fyrst og fremst gert til að fá sem flesta til að leggja hönd á plóginn.
   Vakin skal athygli á því að í nefndum listum er mikið um skammstafanir og þá sér í lagi þar sem eiganda bátanna er getið. Stafar þetta af takmarkaðri línulengd en hrökkvi orð í næstu línu verður skjalið ruglingslegt og erfitt aflestrar.
Komi sú staða upp hjá lesandanum að hann átti sig ekki á eigendum einstakra báta þá er hægur vandi að hafa samband við skrásetjara, sem mun leysa úr þeim vandkvæðum því að allir listar eru til á Exelskjölum án skammstafana.
   Til að auðvelda aðgengi þeirra sem koma til með að skoða vefinn er rétt að geta þess að sérstakur listi er yfir stálskip, plastbáta, skútur og tréskip. Skútur eru að vísu einnig innifaldar í tréskipalistanum en þeim lista er skipt í þrjá hluta vegna þess hversu viðamikill hann er og erfiður í vinnslu. Listarnir eiga að öðru leyti að skýra sig sjálfir þannig að óþarfi er að eyða fleiri orðum að þeim. 
 
ÁBÁ