myspace hit counter
www.aba.is



















Upplýsingavefur um eyfirska báta og bátasmiđi
19.3.2010 - Betur má ef duga skal.
   Nú á vordögum 2010 er vefritara efst í sinni málshátturinn „Betur má ef duga skal“.
Dregið hefur úr ábendingum lesenda seinustu vikurnar og er það í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt.
Vefritari vill þó hvetja menn til frekari dáða og biðja lesendur að senda inn ábendingar. Grunur vefritara er að lesandinn vilji ef til vill ekki senda inn ábendingu um báta eða bátasmiði nema að hann sé handviss um að rétt sé með farið. Þessi afstaða er í sjálfu sér góðra gjalda verð svo langt sem hún nær en hafa ber í huga að vefritari getur ekki rannsakað hluti sem hann hefur ekki vitneskju um.
Það er því beiðni vefritara að búi lesandinn yfir einhverri vitneskju er varðar efni vefsins þá sendi þeir inn ábendingu þar að lútandi, sem vefritari mun í framhaldinu taka til nánari skoðunar.
Lesendum er bent á að með framlagi sínu er þeir, ekki síður en vefritari, höfundar þessa verks og því að hluta ábyrgir fyrir efnismagni.
Uppsetningu og texta mun vefritari alfarið taka á sig hér eftir sem hingað til.

ÁBÁ.



Skođa alla fréttina

28.11.2009 - Framvindan
   Þrátt fyrir að vefurinn beri það með sér hvernig verkinu miðar þá sér skrásetjara ástæða til að fara um það örfáum orðum.
Sumarið 2009 hefur verið notað til að skoða staðhætti vestan Eyjafjarðar þar sem bátar hafa verið smíðaðir. Tvær ferðir fyrir Skaga, ein fyrir Vatnsnes og tvær ferðir á Strandir, þar af önnur norður í Ófeigsfjörð, hafa fært skrásetjara mikla vitneskju um skipasmíðar á þessu landsvæði. Einnig hefur skrásetjari leitað gagna á skjalasöfnum beggja vegna Eyjafjarðar og fundið gögn, sem kasta ljósi á skipasmíðasöguna. Einnig hefur skrásetjari komist yfir gögn í Þjóðskjalasafni Íslands, sem hafa gefið mikla vitneskju. Heimsóknir í þessi söfn hafa fært skrásetjara heim sannleikann um það  að betur má ef duga skal og er deginum ljósara að söfnin verður að kemba betur.
Skrásetjari þakkar þeim sem lagt hafa honum lið og viðurkennir fúslega að vefurinn væri miklu fátæklegri án aðstoðar fjölda manna.
Svona verk er ekki eins manns en með því að koma upplýsingum fyrir sjónir manna á vefinn þá hafa lesendur stórlega aukið við þær upplýsingar sem þar mátti í upphafi finna.
Eftir að vefurinn fór í loftið þá hefur skrásetjari bætt inn fyllri upplýsingum um báta sem hafa farist með lýsingu á atburðarrásinni eins og hún er best þekkt. 
Afdrif annarra báta hefur einnig á nokkrum stöðum verið endurbætt.
Vefurinn er raun alltaf á hreyfingu og það sem á honum stóð í gær getur þess vegna litið öðruvísi út í dag.
 
ÁBÁ.



Skođa alla fréttina

17.4.2008 - Viđtökur.
Viðtökur við bátavef þessum hafa verið með miklum ólíkindum. Þess má sjá stað á teljara vefsins en sú tala segir samt ekki nema hálfa söguna.
Vefnum hafa borist ábendingar og fyrirspurnir, sem hafa haldið vefstjóra föngnum framan við tölvuna dögum saman við skráningu upplýsinga. Um þetta er vissulega ekkert nema gott eitt að segja því að til þess var leikurinn gerður að allir hefðu möguleika á að leggja sitt af mörkum.
Ekki er nokkur vafi á að birting þessa efnis á vefnum var hárrétt ákvörðun. Þessi gagnvirki vettvangur hefur gefið lesandanum tækifæri á að leggja lóð sitt á vogaskálina og koma á framfæri vitneskju um bátasmíðar í Eyjafirði, sem sennilega hefðu að öðrum kosti ekki verið skráðar.
Vefritari er því ákaflega þakklátur öllum þeim fjölmörgu, sem hafa lagt honum lið við verkið en hvetur samt lesendur til enn frekari dáða. Engar upplýsingar eru svo léttvægar að þær verði ekki skoðaðar og hafa ber hugfast að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
 
ÁBÁ.


Skođa alla fréttina