|
Formáli.
Formáli.
Vefur þessi inniber umsagnir um skipasmíðastöðvar og einstaka skipasmiði svo og báta og skip þessara aðila, sem byggðir hafa verið innan útvarða Eyjafjarðar, Hvanndalabjargs að vestan og Gjögurs að austan.
Eftir margra ára vinnu við söfnun upplýsinga um skipasmíðar í Eyjafirði þá er höfundi orðið ljóst að það er ekki á eins manns færi að skrásetja þessa sögu. Leitar hann því liðsinnis allra þeirra sem þetta lesa og búa yfir vitneskju um þessi mál.
Í útgefnum skipaskrám er byggingarstaðar skipa og báta getið en ekki hver eða hverjir hafa unnið verkið.
Með birtingu þessa verks á netinu er vonast til að komist verði yfir þá vitneskju, sem enn kann að vera til staðar hjá þeim, sem muna gamla tíma.
Er sú stund rennur upp að ekki verður lengra komist í öflun upplýsinga má vel hugsa sér afraksturinn í bókarformi finnist mönnum tilefni til.
Um sjálfan vefinn er það að segja að hann mun í upphafi byggjast upp af skráðum texta en með tímanum tekst vonandi að setja inn myndir af því, sem hann fjallar um.
Lénið www.aba.is og eigandi þess þakkar af alhug þeim sem stutt hafa þetta framtak. Ekki aðeins þeim sem sjáanlegir eru á síðunni og leyft hafa gagnkvæmar krækjur heldur einnig þeim, sem styðja framtakið án þess að vera þar sýnilegir.
Gagnkvæmar krækjur gefa vissulega fyrirheit um meiri og betri árangur í söfnun upplýsinga því að búast má við fleiri heimsóknum á síðuna þeirra vegna.
Þrátt fyrir að mikið hafi unnist í söfnun upplýsinga þá er skrásetjara ljóst að mikið verk er enn óunnið. Vitneskja um báta og skipasmíðar á Eyjafjarðarsvæðinu eru að falla í gleymskunnar dá og því er enn og aftur skorað á alla þá sem búa yfir vitneskju um þessi mál að láta frá sér heyra og hjálpa þannig til með að halda sögunni til haga.
Höfundi er vel ljóst að auðvelt er að nota aðgengi að þeim upplýsingum, sem hér verða birtar.
Verði slíkt gert er treyst á að heimilda verði getið.
Árni Björn Árnason.
Dalsgerði 7F.
|