myspace hit counter
www.aba.is



















Skip austan Eyjafjarðar
   Hér er að finna upplýsingar um báta og skip sem byggð hafa verið frá Gjögurtá, útverði Eyjafjarðar að austan, að Fonti á Langanesi svo og þeirra fyrirtækja og einstaklinga, sem byggðu þessi fley.
Hvatinn er sá að forða frá gleymsku því sem enn í dag kann að vera vitað er um þessi mál.
   Það er ekki á eins manns færi að finna alla vitneskju um bátasmíðar, sem leynast kann í þeim byggðarlögum sem spanna yfir þetta landssvæði. Til þess þarf aðstoð lesenda.
Skorað er á alla þá sem vita betur að láta frá sér heyra og hjálpa þannig til með að halda sögunni til haga.
   Auðvelt er að koma athugasemdum til höfundar því að neðan texta á öllum síðum er kassi þar sem skrá skal athugasemdir og smella síðan á „Senda“.
   Að gefnu tilefni skal tekið fram að athugasemdir frá lesendum koma aðeins fyrir augu höfundar þannig að sá sem þær sendir þarf ekki að óttast að þær fari á flakk á netinu.

Árni Björn Árnason.
aba@tpostur.is
Dalsgerði
7F
Akureyri.